steinamagg.bloggar.is
Réttir og Laugarvatnsdjamm :)Steinunn Hulda Magnúsdóttir
afsækið mig að ég sé ekkert búin að blogga lengi, það er bara búið að vera svo mikið að gera hjá mér, skólinn byrjaður á fullu og svonaVið fengum netið heima í Reykjavík á sunnudagskvöldið þannig ég hef ekkert geta farið á netið þar.
En ef ég rifja upp síðustu vikur þá eru þær búnar að vera fjölbreyttar og skemmtilegar :)
Fór norður í réttir helgina 4-7 september. Það var rosalega gaman, lögðum af stað norður á fimmtudeginum, þegar heim var komið fór ég að stússast í hestunum, fór í fjós og svo skelltum ég og Andrea okkur á hestbak. Þegar inn vara komið hófst smurningin fyrir morgundaginn og pökkun ofaní hnakktöskuna.
Morgunin eftir vaknaði ég kl 6 og var komin upp að Hnjúkshliði kl korter yfir 7. Ég, Haukur og Magnús á Helgavatni þurftum að bíða uppfrá í 1 og hálfan klukkutíma því Biggi upp og hans fylgdalið komu ekki fyrr en um hálf 9. Loks var raðið mannskapnum í fjallið og lagt af stað ég var 3 efst í fjallinu, Ingþór á gilá efstur svo koma andri á þingeyrum og svo ég og öll strollan þar fyrir néðan. Það var nú þónokkuð puð að koma sér uppí fjall þar sem við áttum að vera en loks komust við upp!!!! jæja allt gekk vel með fyrstu fáar kindur og svona, en svo byrjaði helv.... stríðið kindurnar fóru alltaf ofar og ofar í fjallið og til baka!!! Þær vildu engan veginn fara niður því veðrið er búið að vera svo gott að þeim líður svo vel uppi, en ég þrjósku kindin hljóp og hljóp til að reyna komast fyrir þær, ég var farin að skríða á tímabili en FINALLY komst ég fyrir þær, hélt að þessu væri lokið!!! :) jæja annars gekk fjallið bara vel og allar kindurnar komust niður að lokum.
Á laugardeginum þegar við komum í réttirnar hafði komið gat á girðinguna þar sem kindurnar voru um nóttina og helmingurinn sloppinn saman við kindurnar frá sunnuhlíð, þannig það þurfti að gjöra svo vel að smala allt hólfið, kindurnar lenntu í að fara yfir á og það var svo mikill straumur að mennirnir þurftu að fara ofan í ána og standa fyrir kindunum svo þær flytu ekki með ánni, pabbi, siggi og fullt af mönnum voru rennandi upp að nafla. En annars gekk réttahöldin bara vel.
Hnjúksfamilían ákvað að breyta út af vana og keyra öllu fénu heim því klukkan var orðin svo margt þegar réttirnar voru búnar og svo var Siggi með svo fínan vagn til að flytja í :)
Á laugardagskvöldinu var svo skellt sér með rútu sem ég og Siggi bróðir redduðum á ball í Víðihlíð, það var mjög gaman, hljómsveitin var ekkert frábær en samt allt í lagi :) svo var haldið með rútunni afturi heim, nokkrir drápust og aðrir skiluðu kvöldmatnum út á vitleysum stað og svona, en allir komust heilir á húfi heim :)
Sunnudagurinn fór í að sofa fram að hádeigi, svo smöluðum við Hnjúkinn, tókum lömbin frá rollunum og tókum líflömb frá sláturlömbum, þannig pabbi er búinn að slátra 1 slátrun :) Svo var haldið heim um kaffi leytið á sunnudag. :) eftir frábæra helgi.
Svo er skólinn búinn að vera á fullu, mjög gaman, krakkarnir sem eru með mér á fyrsta ári rosalega fín, það tala allavegana margir um það hvað þetta er samheldinn hóipur! Svo var ég að byrja æfa blak með laufdælingum rosalega gaman, erum að fara keppa eftir mánuð :)
Svo er búið að vera ferðalagið í Brúarárskörð og heppnaðist það rosalega vel, fyrir utan að ég týndi símanum mínum þannig ég er með eldgamlan síma frá mömmu en hann gagnast :)
Svo var busunin daginn sem við komum heim. Rétt fyrir hana sparkaði ég tánni í rúmið og reif upp nöglina þannig það foss blæddi. Svaka heppin, en annars var busunin skemmtileg og soldi kynferðinsleg sem dæmi þurftu strákarnir að standa berir upp á sviði með sokk um titlinginn og kynna sig það mátt bara fara einn í einu og stelpurnar voru berar að ofan en í brjóstahaldara, fyrst áttum við ekki að vera með hann en svo var okkur leyft það sem betur fer hehe hitt var nógu vandræðalegt :)
Kennódjammið var svo núna síðasta föstudag þá kom menntavísindasvið háskóla íslands á Laugarvatn, það var búningasamkeppni við vorum mörgæsir minn bekkur, fórum í leiki, borðuðum, þau drukku ég var edrú og svo var skellt sér á ball í Úthlíð mjög gaman. Þegar heim var komið ákvað ég að renna í bæinn því ég var ekkert þreytt og nennti ekki að keyra daginn eftir þannig ég var komin í bæinn um kl 5 um morguninn, gott að komast upp í rúm mmm.
En jæja ætli ég fari ekki að ljúka þessu þetta er allavegana orðið nógu langt, þú ertuð hörkutól ef þið nennið að lesa allt bloggið :)
LaugarvatnSteinunn Hulda Magnúsdóttir
Jæja gott fólk ég byrjaði víst með blogg á 123.is en það þarf að borga fyrir aðgang þar og ég tími því ekkert er fátækur námsmaður sem þarf að spara :) ef maður getur líka fengið frítt annarsstaðar þá nýtir maður sér það auðvitað :D
En margt hefur gerst nú í ágúst fór út til Spánar 31.júlí og kom heim 14. ágúst það var svakalegt stuð hefði alveg verið til í að vera lengur en það var líka gott að koma heim gerðu rosalega marg úti t.d. fórum í tívolí, vatnsrennibrautagarð, go-kart, 2 moll, markað, hestbak á spæknskan hest það munaði nú sáralitlu að ég þyrfti stiga þvílíkir risar maður hehe og brokkið shit maður!! jet sky og margt fleira.
Þegar ég kom heim frá útlöndum, fór ég á Akureyri að hjúkra systur minni því hún var nýkomin úr aðgerð og var að sálast úr verkjum var þar í 2 daga og var svo í viku með búið fyrir pabba því pabbi og anna fóru í borgafjörðinn í ferðalag og fóru svo á landbúnaðarsýninguna yfir helgina á Hellu, þau voru rosa ánægð eftir ferðina!!! Fór í reiðtúr á hverjum degi stundum 2 til að þjálfa hestana fyrir göngur svo líka var þetta ótrúlega gaman, það lá við að ég fengi sár á rassgatið maður var allavegana hel aumur .... kiddi Þorbjörns var líka ótrúlega næs við mig kom alltaf með mér í reiðtúra og svo riðum við einu sinni út í ásbrekku, riðum svo engjarnar heim að undirfellsrétt, hestarnir urðu brjálaðir þegar þeir komu á svona mjúkr graslendi + öll víðáttan sem blasti við þeim, þannig ég sleppti 2 af hestunum og leyfði þeim bara að hlaupa með ekki fannst þeim það leiðinlegt riðum yfir 2 ár þetta var ótrúlega gaman riðum svo veginn heim að Kornsá 2 og svo rak ég á bílnum restina heim í mígandi rigningu þá var nú gott að sitja inní bíl og hlústa á rigninguna úti hehe :)
Fór svo suður á mánudeginum og reyndi að koma okkur fyrir í íbúðinni, en náði samt ekki að klára eigum eftir að setja gardínustöng gardínur og þess háttar smotterí, fór svo á Laugarvatn í gær (miðvikudag) um miðjan part, fór svo niður í sal u hálf 9 í morgun, því það var kynning á skólanum og svona fórum svo þrek eftir hádeigi fitumælingu, hæð, þyngd, styrktar, liðleika og þrek, sund og kafa þetta var pínu erfitt en komst því miður ekki þrekið vegna þess að mjöðmin var alveg búin að segja nei takk þannig ég varð að hætta (ömurlegt ekki gaman að horfa bara á ) en vonandi eftir þessa 10 daga á töflu og krema meðferð þá verð í betri bið bara til guðs :) þetta er ömurlegt. Það er svona að eiga gallaða móður hehe neinei hún er dásamleg :)
Svo bíður okkar bara útivistarferð á mánudag og þriðjudag eigum að gista í tjaldi yfir nóttina og eigum að bera allan farangur sem við tökum með okkur. Ferðin á að taka 3 klst ef farin er rétt leið en við erum með áttavitann og nemendurnir eiga að segja leiðina kennarnir fylgja bara, krakkarnir í fyrra voru 7 klst í göngunni vona að við verðum einhvað fljótari + það var svo mikil rigning að björgunarsveitin sótti þau um nóttina vona að það verði rosa gott vedur hjá okkur :)
Jæja þetta er nóg í bili endilega komið með comment :)
SumariðSteinunn Hulda Magnúsdóttir
Jæja það er aldeilis langt síðan ég bloggaði síðast, ég er að huxa hvort ég eigi einhvað að fara byrja aftur eða setjast í helgan stein með þetta blessaða bloggÞað er nú margt sem hefur drifið á daga mína í sumar,
Ég fór t.d. á Fjrálsíþróttamót í Mosfellsbæ sem er kallað Goggi Galvaski og þangað fór ég með um 10 stk við gistum í íþróttahúsinu á Varmá og allt gekk rosalega vel, Við fengum silfur í spjótkasti stráka 11-12 ára og silfur í kúluvarpi, brons í spjótkasti stelpna 11-12 ára og 3 sætið í 4x100m hlaupi stráka 13-14 og komumst í úrslit í nokkrum greinum til viðbótar. Svo fórum við ánægð og þreitt heim á sunnudagskvöld.
Ég og Jónas fórum á Bíladaga á akureyri heligina 17 júní, það var mjög fínt, fór á burn outið með Jónasi, Helga Sævari og Steinunni, það var fínt, gerðum lítið um kvöldið vorum bara á tjaldstæðinu og fórum snemma að sofa, svo kíkti ég með Ingu Mæju í búðir á laug, fór svo niðrí bæ á laug með Erlu, Ágeiri og Eið, fór í sjallann með Höllu og það var bara fínt, fórum svo heim á sunnud. um 6 og vorum þauðþreytt þegar við komum heim og steinsofnuðum.
Ég, J'onas, Arna tengdó og Gummi tengdó fórum í ferðalag norður á Mývatn, ferðuðumst mikið og það var ótrúlega gaman, og það er ekkert smá fallegt þarna!!!
Fórum suður síðustu helgi að hitta mömmu, Pétur og ömmmu, ég keypti mér skó, buxur og bol en Jónas keypti sér buxur,2boli, peysu,
En nú verð e´g að fara vinna, kemur blogg vonandi fljótt aftur :)
Nýjar strípurSteinunn Hulda Magnúsdóttir
jæja gott fólk, þá held ég sé nú kominn tími á nýtt blogg, um síðustu helgi byrjaði helgin á því að ég fór heim á blönduósi að þjálfa eftir það fór ég heim til Sigga að skoða litu frænku, og það er alveg ótrúlegt hvað hún er búin að stækka mikið, en allavegan keyrðum ég og Jóhanna á Gauksmýri því Jón bróðir pabba var 60 og hann bauð fjölskydunni í mat á Gauksmýri og matur var bara æðislega góður....Jónas kom að sunnan þetta kvöld frá því að vera að keppa á Íslandsmóti iðnema og gekk honum bara mjög vel þeir lentu í öru sæti, til hamingju með það (K)
Um morguninn vöknuðum ég og Jóhanna kl hálf 9 og lögðum af stað til Reykjarvíkur á engum slor bíl, engu öðru en Toyota Land cruiser sem pabbi á, engar smá svaka pæjur :) þegar lent var í reykjarvík, fór ég með Jóhönnu Rut og Sólrúnu í smáralindina að leyta að afmælisgjöf handa Jóhönnu systur því hún átti afmæli 22 mars og var hvorki meira né minna 20 ára, innilega til hamingju með það systa mín, J þegar leitinni var loksins á enda var ferðinni heitið upp í Ekrusmára,(íbúðin sem mamma var að kaupa) að mála, var þar málað að kappi til 2 um nóttina, bévítans dugnaður J Um nóttina lennti ég í því óhappi að æla, man ekki eftir mér fyrr en ég sit á klósettgólfinu með restina af ælunni í nefninu, því þetta kom á svo svakalegum kraft, lagði ég mig þá aftur með viðbjóðslega æli í munninum og troðfullt nef af ælu. !!!! Vildi bara deila þessu með ykkur. * Vona að þið séuð að borða þegar þið lesið þetta * heh :p Sunnudagsmorguninn var alveg ónýtur hjá mér því mér var svo illt í maganum eftir nóttina,fór svo upp í hús um eitt leytið var þá byrjað að mála alveg að fulum krafti, og voru við orðin uppgefin eftir að vera stanslaust ofan í málningadollunum, og hárin og hendurnar vel klepjulegar af málningu og þakka ég mömmu fyrir fallegar hvítar strípur í hárinu sem eru ekki ENN farnar úr hmmm :P en farið var að sofa um 2 leytið
Mánudagurinn var bara slakur taldi flöskur, fór í kringluna og keypti mér úr, svo fór ég upp í vinnu með mömmu, hafði mig til að leggja af stað norður, kippti Beglindi og Írisi upp og þá var lagt af stað.
Vikan er svo bara búin að vera ósköp róleg, er bara búin að vera í skólanum og læra, svo skellti ég mér í Sólheima á miðvikudaginn, það var svo geggjað veður J
Sótti ég og Þóra svo Nemó hundinn hennar mömmu eftir skóla í gær (fimmtud) og er hann hérna í Lækjarholti og góðum félagsskap heimamanna ;o), Ég og Jónas fórum með hann í göngutúr í gær bara lausan, þegar við komum soldi út fyrir bæinn þá sá hann hestana fyrir ofan veginn (hann hefur aldrei séð hesta) hljóp upp að hestunum eins og fætur toguðu, ég á eftir, og eltingaleikurinn stóð asskoti lengi yfir þanga til ég gafst upp, alveg búin að missa þolinmæðina að ná honum L og labbaði niður eftir, helduru að hundurinn hafi ekki skokkað á eftir mér. L Svo í morgun þegar ég fór í skólann þá setti ég hann inní búr, Gummi tengdó var svo góður að fara svo með hann í göngutúr, svo þegar ég kem heim um 11 þá var Berglind og Melkorka að fara með hann í göngutúrJ svaka heppinn maður J svo er hann bara búinn að dandalast með fólkinu í dag J, annars veit ég nú ekkert að honum, hann er t.d. núna hjá skvísunum Berglindi, Melkorku og Guðbjörgu í einhverju kjassi J hehe,
En nenni þessu nú ekki meir
Kveð í bili :)
Veriði nú dugleg að commenta og skrifa í gestabók,
Meiri háttar vika :)Steinunn Hulda Magnúsdóttir
Alltaf er ég jafn heppin, var búin að skrifa heilan helling og allt fór út L...... En margt og mikið hefur drifið á daga mína síðustu vikur, það byrjar á prófum, hita og ógeði, opnir dagar, árshátíð, ball á barnum með ísafold og ball á kaffi krók með Ulrike, svo skólinn að nýju L Prófin voru vikuna 27-2 mars, í heildina litið gekk mér bara vel í þessum prófum, og endaði ég svo síðasta prófið að vara með 38,7 stiga hita ógeðslegt, en sem betur fer hresstist ég 3 dögum seinna, var nefnilega búin að liggja 2 vikum áður með sama hita í 6 daga algjör viðbjóður L Svo hófust opnudagarnir í skólanum og voru þeir frá miðvikudeginum 7 mars til föstudagsins 9 mars, það var mjög mikið stuð, ég byraði á að fara í jóka eftir hádeigi á miðvikudeginum það var mjög fínt, (maður þaf að vera helv. liðugutr sjeettttt) fór svo upp í krús að horfa á strákana rústa bílnum hans Jón Gauta, ég var orðin helv.. hrædd á tímabili verð ég að viðurkenna!! L Þeir sem voru að rústa bílnum voru Jóas, Unnar, Davíð og Siggi kúskur. Hér koma nokkrir línkar frá einu stökkinu hjá drengjunum
http://www.dabbihan.com/byllifyttur/e107_plugins/kig_menu/index.php?view=image&imageId=494
http://www.dabbihan.com/byllifyttur/e107_plugins/kig_menu/index.php?view=image&imageId=512
http://www.dabbihan.com/byllifyttur/e107_plugins/kig_menu/index.php?view=image&imageId=496
http://www.dabbihan.com/byllifyttur/e107_plugins/kig_menu/index.php?view=image&imageId=498
En ég tek það fram að þeir voru með hjálpa og vel búnir inní bílunum, þegar ég var orðin helv. Hrædd, fór ég í klippingu og strípur á kúnst, og er mjög sátt með hárið á mér, eftir það fór ég í nudd á tánna í klukkutíma ( var að nýta það sem Jónas gaf mér í jólagjöf) nuddið var geðveikt, hún er snillingur að nudda mamma hans Elfars. Þegar ég var að bruna svo heim eftir nuddið hringir Þóra í mig og býður mér með á Hvammstanga mð henni og Írisi á leikrit og ég ákvað að enda daginn með trompi og skella mér a´leikrit svo kom ég heim um kl 12:30 um kvöldið þauð þreytt og steinsofnaði!!.. en þetta var frábær dagur J Á fimmtudeginum fer ég á förðunarnámskeið það var fínt, eftir það forum ég og Írsi til ak á háskólakynningu, ég verslaði mér helling þar, mér var farið að líða soldi illa í buddunni minni þegar ég var á heimleið ekki miskilja :p, en ég keypti mér kjól, skó, jakka og púður, þannig þar fór um 20 þús. Kall *grát* en ég er allavegana sátt með dótið. Um kvöldið skelltum við okkur út, ég, Þóra, Íris, Sandra og Jón Gauti var svo æðislegur að rúnta með okkur J fórum svo á barinn og þar skemmti ég mér ótrúlega vel J Föstudeginum átti ég að fara í klifur en var ekki alveg í standi til að vakna L heh, fór svo á fyrilestur ,,líf eftir dauðann” sem var mjög áhugaverður en þurfti því miður að yfirgefa staðinn miklu fyrr því var að fara heim að þjálfa!! Vann svo á laugardeginum til 4, fórum svo á árshátíðina um kvöldið, þetta var rosalega vel heppnum árshátíð í alla staði J Auddi Blöndal stóð sig frábærlega í alla staði sem veislustjórim, því miður gleymdi ég bölvaðri myndavélinni heima þannig ég á engar myndir L um kvöldið tókum við svo rúnta áður en við fórum á ballið (ég, Jónas og Unnar) svo dansaði ég af mér raskatið á ballinu, og kíkti svo á Kaffi krók með Matthildi og Evu Dögg það var mjög fínt, endaði svo með því að kára bossan á Barnum ;)
Því miður kom ég ekki myndunum sem ég ætlaði að setja hingað inn frá ballinu :( En svo tók bara við venjuleg skólavika sem er ekkert spennandi eða segja frá né lesa J en vonandi ertu ánægð Gunna mín hehe,Vonandi koma frétti inn fljótlega svo ég verð ekki smömmuð mikið J hehe Bless í bili ;)
Mikið og margt gerstSteinunn Hulda Magnúsdóttir
Bara láta vita að ég er ekki dauð!!!! HEHEHE..... Mér finnst ekkert skrítið ef þið hafið haldið að ég væri dauð :)
Það margt búið að drífa á daga mína síðastliðnar vikur.....
Það byrjaði á því að ég gaf Jónasi einkanúmer í jólagjöf, þá fannst honum arsnalegt að vera með fallegt einkanúmer á einhverri dru... já segi ekki meir :).... þannig hann fór að skoða á netinu og fann einn fagra blakk..... Ákveðið var að skipullega ferð suður helgina 11-14 febrúar. Fórum við á fimmtudagsmorgun til að við hefðum fimmtud og föstud til að skoða bílinn og skrifa undir alla samninga.... Jæja svo gerðist það að hann keypti mjög fallegan Mercendes Benz AMG týpu, en vandamálið var það að það voru bara sumardekk undir og hávetur á Íslandi þannig þegar búið var að fá bílinn og ganga frá öllum gögnum vara farið í leit að vetradekkjum, við leituðum og leituðum svo endaði þetta á a ð Hjálmar elskan bjargaði okkur alveg þú átt mörg knús fyrir það elskan!!!! Jæja þá hættu við að huxa um þennan fagrablakk og kíktum í búðir og í heimsóknir, ákvað ég svo að endurnýja gleraugun og henda gömlu góðu ljótu gleraugunum á hilluna :) Keypti mér Armani gleraugu :) mjög sæt :) en jæja svo var haldið heim.....
Svo er ég bara búin að vera vinna á fullu er búin að fara á 2 þorrablót fyrst á þorrablótið hans Jónasar sem haldið var í íþróttahúsinu föstudaginn 26 janúar, helgina eftir var haldið Þorrablót heim sem sagt laugardaginn 2.febrúar og pabbi vara tekinn soldi í annálnum... ég var gerð að fíbli á þorrablótinu, ekki gaman var eins og epli í framan og sjóðandi heit... ég skammaðist mín hrillilega!! þeir vita um hvað ég er að tala þeir sem sáu þetta hehe... Svo voru Gunna Stína og Valdi svo elskuleg að bjóða mér og Jóasi á þorrablót laugardaginn 17 febrúar.
Svo var haldið dodgeballmót í skólanum og ég, Þóra Björg, Íris, Fanney Skúla, Sandra Hilmars og Ása vorum eitt team :) Við hétum Team Kitty kat :) Ég get ekki sagt að við höfðum rústað mótinu hehe en við unnum bestu búningana þið getið skoðað myndir frá því á myndasíðunni slóðin er hér til hliðar en þetta var meiriháttar gaman :)
Jæja ég fer nú að ljúka þessu... þarf að fara læra Ásbjörn væri nú ekki ánægður ef hann vissi hvað ég væri bún að vera gera í tímanum fyrir ykkur :p. Jæja þið verðið þá að vera dugleg að commenta þá skal ég vera dugleg ég held þetta sér allt að koma hjá mér :)
Prófin að bresta áSteinunn Hulda Magnúsdóttir
jæja gott fólk, þetta verður ekki langt í kvöld þarf að vera duglega að læra því prófin byrja á föstudaginn á nefnilega svo mikið eftir að gera fyrir þau :(,
Gunna Stína var nú svo elskuleg að bjóða mér að koma í Melsgil á morgun saumaklúbburinn hennar er að fara á Keramiknámskeið hjá Hersíai í Kompunni, er að hugsa um að skella mér með henni, á nú samt mikið eftir að læra fyrir þessi blessuðu próf, en ég verð bara að vera dugleg að læra á morgun, á ekki að þufa að vakna fyrr en kl hálf 10 en ætla að fara í skólann kl 8 að læra, mér veitir ekki af, svo finnst mér best að vera í skólanum að læra inná bókasafni, maður heldur sér svo við efnið það er frábært,
Ég er að fara til tannlæknis á morgun, hlakka ekki til hata að far til tannlæknis ekki það að kallinn sé leiðinlegur nei hann er rosalega fínn, er bara alltaf svo hrædd við tannlækna :(,
Ég var að vinna í Hlíðakaup í gær frá 5-10, þar sá ég að það var verið að auglýsa föndurkvöld í Melsgili fimmtudagskvöld kl 8 og föstudagskvöld kl 6, það er verið að fara föndra kransa, maður getur valið um aðventukransa, kransa til að setja á leiði, hurðakransa og margt fleira, ég var svona að hugsa um að fara áður en Gunna Stína bauð mér að koma með á hitt föndurkvöldið, en ég ætla að sjá til hvort ég fari á kransakvöldið, langar samt þónokkuð að fara en þetta kemur allt í ljós,
Ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra í kvöld, verð að gera 3-4 spurningar í viðbót í landafræði bið að heilsa í bili.
Ég svaraði einhverjum spurningum hjá Jöhönnu fyrr í kvöld er að hugsa um að byrta þær og leggja fyrir ykkur sömu spurningar svo þið getið svarað fyrir mig elskurnar mínar :)
1. miðnafnið þitt: Hulda
2. Aldur: 17 verð 18 eftir nokkra daga :) þá þarftu að gefa mér afmælisgjöf :)
3. Single or Taken: Taken with lovely boy
4. Uppáhalds bíómynd: Ísöld :)
5. Uppáhalds lag: fullt alveg
6. Uppáhaldshljómsveit: bara geiri hann stendur alltaf fyrir sínu hehe
7. Dirty or Clean: Clean
8. Tattoo eða göt: Tattoo
9. Þekkjumst við persónulega? Hehe já ég bíst nú við því við erum nú systur :)
10. Hver er tilgangurinn með lífinu? að lifa því rétt, og fara vel með sjálfan sig, ekki gera einhvað sem maður sér eftir því það fylgir þér um ókomna tíð því miður
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum? hvað meinaru með bakk upp, en ég myndi allavega hjálpa þér eða reyna að stoppa slaginn, ég þyrfti nú samt ekkert að hjálpa held ég nema það séu komnir 3-4 manns hehe
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli? Já auðvitað elskan þú getur alltaf treyst mér þú veist það sjálf :)
13. Besta minningin þín um okkur? Þegar við vörum að syngja bull l-g í gegnum rörið á rólunum okkar hehe og við erum búnar að bralla svo margt saman það eru svo ótlejandi minningar,
14. Segðu eitthvað skrýtið um þig: apaheili hehe þvílík spurning
15. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur? já að sjálfsögðu elskan stend þér alltaf næst
16. Getum við hist og bakað köku? ´já komdu bara norður 6 des við erum að fara baka þá :)
17. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega? neibb, þú segir mér allt, þannig ef ég heyri einhvað þá veit ég að það er lígi :)
18. Finnst þér ég góð manneskja? já það ertu elskan
19. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið? hehe já ég hef nú samt gert það en við sváfum nú mest alla keyrsluna hehe fyndið :)
20. Finnst þér ég aðlaðandi? já ef ég væri strákur þá myndi ég slefa á eftir þér,
21. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari? engu þú ert æði
22. Í hverju sefuru? bara brók má ekki sofa í fleiru, þá rífur jónas mig strax úr eða verður reiður af hverju ég sé að kaððk´læða mig fyrir svefninn hehe.
23. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla? já auðvitað hef gert það oft :)
24. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér? ég veit ekki með stefnumót en ég myndi koma að gera hvað sem þú vildir út að borða barahvað sem er
25. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera? reyna allt til að láta þig lifa áfram, berjast fyrir lífi ínu :) elska þig mest
26. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út? já það gerði orði svo:)
Hérna koma spurningarnar sem þig eigið að svara :)
1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
15. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
16. Getum við hist og bakað köku?
17. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
18. Finnst þér ég góð manneskja?
19. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
20. Finnst þér ég aðlaðandi?
21. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
22. Í hverju sefuru?
23. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
24. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
25. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
26. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?
suður um helgina :)Steinunn Hulda Magnúsdóttir
jæja gott fólk, ég stefni á að renna suður um helgina, ætla reyndar að leggja af stað á morgun, ég og Jónas ætluðum að fara seinni partinn því hann er ekki búinn í skólanum fyrr en kl 6 en svoo spáir bara leiðinda roki annakvöld, þannig vð leggjum örugglega af stað um 3 leytið, hann ælar að reyna að fá meiraprófsskírteinið á morgun, sýsluskrifstofan á að verá búin að redda þessu en hún vara bara að gubba út úr sér núna að það þurfi að redda sakavottorði, ég er ekki alveg inní þessu held það sé einhvað í þessa áttina, hann kláraði meiraprófið í dag, svo byrjar þar næstu helgi vinnuvélanámskeiðið og hann ætlar lík að taka það, en við ætlum suður þessa helgi því við komumst enga aðra, alveg busy fram að jólum :(.Ég er komin með jólapróftöfluna, ég fer 1.des = Þýskupróf kl: 9 , 4.des= Dönskupróf kl: 9, Landafræðipróf kl: 14, 5.des= Enskupróf kl: 9, 12.des= Náttúrufræðipróf kl: 9 og þá er ég búin :) það er ekkert lokapróf í íslensku jibbí jei :) við tökum bara 5 kaflapróf í staðin, asskoti erfið, en það er skárra en lokapróf :) ég er að huxa um að skella mér í vinnuna 6,7 og 8 des og svo aftur 13 des, á pósthúsinu.
Jahérna hvað styttsist í jólin, það er magnað hvað tíminn líður hratt jahérna. Ég veit þið segið að ég sé rugluð en ég er búin að pæla svolítið í jólagjöfum og kaupa nokkrar hehe
Ég fór heim á miðvikudaginn í síðustuviku til að fara föndra aðeins með ömmu, mér finnst svo leiðinlegt að föndra ein, svo veit ég að amma er alltaf til í að föndra með mér og hún hefur líka ekkert svo mikið annað að gera, um að gera að drífa hana í þetta hehe :)
Ég ætti að vera á leikæfingu núna en það var hætt við hana í kvöld, því það lést strákur í skólanum í dag af bráða hvítblæði :( Hvíldu í friði Guðmundur Ingi
En ég á nú eiginlega að vera að læra ekki að blogga, þarf að fara að vera duglegri að læra þegar það styttist svona í prófin :(, en þið voruð að bíða eftir einhverju bloggi, þegar maður er byrjaður að blogga þá er það gaman, en það er leiðinlegast að koma sér í það að opna síðuna hehe, en jæja lesendur góðir ætla að láta þetta duga í bili, ég þakka fyrir allar skoðanirnar sem þið hafið skrifað og á Jóhanna sérstakar þakkir skilið koss fyrir það
